Glasafrjóvganir á Landspítalanum
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Fyrirspyrjandi (Sigríður Lillý Baldursdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. hans athugasemdir hér. Mér sýnist þetta mál munu fá ágæta afgreiðslu eftir orðum hans að dæma.
    Glasafrjóvganir og tæknifrjóvganir yfir höfuð allar eru mjög viðkvæmt mál. Það þarf að taka á þeim af fullri alvöru strax frá upphafi og ég vænti þess að menn geri sér fulla grein fyrir því, allir þeir sem að málinu standa, og vona að tilkoma glasafrjóvgana á Íslandi verði okkur hamingjuauki.