Olíuleki frá birgðastöð á Bolafjalli
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú hefst áður boðuð utandagskrárumræða. Hv. 18. þm. Reykv. hefur farið fram á að gera að umtalsefni olíuleka frá olíubirgðastöð varnarliðsins á Bolafjalli. Umræðan fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga og skal ekki standa lengur en hálfa klukkustund. Ég vil að gefnu tilefni minna menn á að reyna að halda sig við gefin tímatakmörk.