Olíuleki frá birgðastöð á Bolafjalli
Fimmtudaginn 23. nóvember 1989


     Sigríður Lillý Baldursdóttir:
    Virðulegi forseti. Orð utanrrh. þegar hann kemur hér upp í síðara sinn í þessari umræðu eru ekki svara verð. Slysið og meðferð málsins sýnir að reisn utanrrn. í samskiptum þess við varnarliðið er harla lítil. Varnarliðið virðist geta farið hér fram með ólöglegum hætti eins og því þóknast.