Fyrirspurn um framfærsluvísitölu
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti mótmælir því að ekki hafi verið ástæða til að heimila fsp. Það var ekkert sem gat mælt því mót. Til þess að stytta þessar orðræður vill forseti að sjálfsögðu lofa því að eiga viðræður við hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands og inna hann eftir því hvort ganga megi frá svarinu þannig að hv. þm. telji það fullnægjandi.