Gildistaka virðisaukaskatts
Mánudaginn 27. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú hefjast umræður utan dagskrár sem leyfðar hafa verið skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga. Það er hv. 1. þm. Suðurl. sem hefur beðið um að ræða ósamhljóða fréttir af aðgerðum vegna væntanlegrar löggildingar virðisaukaskatts. Í framhaldi af því vil ég segja hv. þingheimi að gert er ráð fyrir kvöldfundi hér sem hefst kl. 8.30.