Stjórnarráð Íslands
Þriðjudaginn 28. nóvember 1989


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti á býsna erfitt með að verða við þessari beiðni vegna þess að hæstv. forsrh., flm. þessa frv., er hér viðstaddur, en forseti skal gera ráðstafanir til þess að náð verði í hæstv. hagstofuráðherra þannig að hann geti verið hér viðstaddur þessa umræðu.