Málsókn á hendur Magnúsi Thoroddsen
Miðvikudaginn 29. nóvember 1989


     Jón Bragi Bjarnason:
    Virðulegi forseti. Sú fyrirspurn sem hér er til umræðu fjallar um mál sem hefur verið dómfest. Það er búið að flytja málið fyrir Hæstarétti og það er búið að dómtaka það fyrir Hæstarétti. Málinu lýkur þar innan nokkurra daga skilst mér. Ég tel að það sé hægt að bera þessa fyrirspurn upp þegar málinu er lokið fyrir Hæstarétti. Ég segi því nei.