Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hv. þm. hafa farið fram á það að nú verði gert hlé á fundinum til þess að hv. utanrmn. geti komið saman. Fundinum er því frestað til ... (Gripið fram í.) Forseti hlýtur að endurskoða ákvörðun sína um að fresta fundinum ef menn virðast vera horfnir frá því.