Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Það er margt sérkennilegt í sambandi við málsmeðferð hér varðandi það stóra mál sem hér er rætt. Hér koma ráðherrar upp til þess að kynna samþykktir og hafa ekki fyrir því að greina frá því hverjir að þeim standa. Ég tel rétt að fram komi að ég er ekki aðili að þeirri samþykkt þingflokks Alþb. sem kynnt var hér af formanni áðan á sama tíma og hann hafði ekki fyrir því að lesa grundvallarsamþykktir landsfundar sem kaus hann sem formann flokksins. Þetta tel ég rétt að fram komi. Ég mun gera grein fyrir mínu sjónarmiði hér síðar við umræðuna.