Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill fara þess á leit við hæstv. þingheim að meðan hv. utanrmn. situr á fundi komi þingflokkarnir saman. Þessi dagur verður að fara í þessa umræðu og forseti leyfir ekki nema eftir að hafa kallað til sín þingflokksformenn til ráðslags neitt hlé vegna þingflokksfunda að svo komnu máli heldur verður fundi nú frestað til klukkan korter yfir þrjú. ( Gripið fram í: Þingsköp.) Forseti hefur þegar frestað fundi.