Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að skoðanir allra hv. þm. eru jafnmikilvægar og vega jafnþungt þannig að með allri virðingu fyrir utanrmn. hafa aðrir þingmenn skoðanir á þessu mikilvæga máli og ég vil spyrja hæstv. ráðherra Hagstofu hvort hann óski eftir að flytja mál sitt. ( Hagstofuráðherra: Já.) Það liggur fyrir að ráðherrann óskar eftir að flytja mál sitt og forseti mun ekki meina honum það.