Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því að eftir 22. nóv. hafa verið haldnir æðimargir og sérstaklega strangir fundir í hv. utanrmn. Mér sýnist alveg einsætt að nefndin eigi að sjá þetta plagg og það strax og þó fyrr hefði verið. Það ætti að vera unnt að senda nefndarmönnum það strax í kvöld og hafa þá fund í utanrmn. á morgun ef nefndarmönnum sýnist að plaggið sé þannig vaxið að þörf krefji.