Sveitarstjórnarlög
Þriðjudaginn 05. desember 1989


     Flm. (Salome Þorkelsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins þakka hv. 6. þm. Reykv. fyrir stuðning og undirtektir við bæði frv. Það má segja að ég hafi lagt þetta fram hvort með sínu orðalagi sem nokkurs konar valkost. Ég get alveg tekið undir það með henni að mér þætti ekki verra að það væri ,,varnir gegn slysum`` í hinu frv. einnig svo að ég held að auðvelt sé að breyta því í nefndinni ef því er að skipta.