Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum
Þriðjudaginn 05. desember 1989


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breyting á lögum um sakadóm í ávana- og fíkniefnamálum, nr. 29/1986. Þetta frv. hefur verið til meðferðar í hv. Ed. og hefur nefndin rætt frv. og fengið til viðtals Hrafn Bragason, formann réttarfarsnefndar, Gest Jónsson, formann Lögmannafélags Íslands, Birgi Kjartansson, formann Verndar, Davíð Þór Björgvinsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, Ólaf Walter Stefánsson, skrifstofustjóra í dómsmrn., og Þortein A. Jónsson, deildarstjóra í dómsmrn.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt eins og Ed. afgreiddi það á þskj. 161, en þrír nefndarmenn undirrita álitið með fyrirvara.
    Sighvatur Björgvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nál. rita Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, með fyrirvara, Guðni Ágústsson, Friðjón Þórðarson, með fyrirvara, Ingi Björn Albertsson, með fyrirvara, og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.