Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins geta þess að þær upplýsingar sem ég flutti hér eru frá þeim starfsmönnum ráðuneytisins sem þetta mál hafa annast. Þeir hafa fullvissað mig um að þeir hafi lagt þetta frv. fram snemma í sumar á fundum nefndarinnar. Það hafi síðan einnig verið tekið til umfjöllunar í undirbúningshópi undir húsbréfakerfi. Ég hef enga ástæðu til að rengja þær upplýsingar sem ég hef fengið frá þeim.