Röð mála á fundinum
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill geta þess að nokkur óreiða er á röð mála sem fyrir eru tekin á þessum fundi. Sú er ástæðan fyrir því að hæstv. ráðherrar eru mjög önnum kafnir þessa dagana og hafa farið þess á leit við forseta að haga fyrirspurnaröð þannig að þeir komist til annarra starfa. Ég vænti þess að hv. þm. fyrirgefi það á þessum fundi að röð sé illa haldið og verði því ekki mótmælt hyggst ég taka fyrir næst 11. mál á dagskrá.