Netaveiði göngusilungs í sjó
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Fyrirspyrjandi (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör. Ég þykist hafa sýnt fram á að reglurnar sem settar voru í sumar hafi þrengt allverulega gildandi lög. En mér dettur ekki í hug að fara að elta ólar við slíkt, sérstaklega í ljósi þess að hæstv. ráðherra lýsti yfir að fyrirhugað sé að nýjar reglur verði settar og þá í samráði við eigendur og ábúendur sjávarjarða og alla þá sem málið varðar. Ég fagna þessari yfirlýsingu og þakka enn og aftur hæstv. landbrh. fyrir góð svör.