Niðurskurður á riðufé
Fimmtudaginn 07. desember 1989


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Hæstv. forseti. Ég þakka þolinmæðina. Ég held að hér hljóti eitthvað að hafa skolast til því samkvæmt upplýsingum sauðfjársjúkdómanefndar og sauðfjárveikivarna er þetta tilvik staðfest riðuveikitilvik og mér er ekki kunnugt um að álit sérfræðinga gangi í aðrar áttir. Hér hefur því einhver misskilningur orðið. Þetta mál er ósköp einfaldlega svo statt sem raun ber vitni vegna þess að samkvæmt upplýsingum sem sérfræðingar telja áreiðanlegar er hér um staðfest riðuveikitilvik að ræða, sambærilegt við mjög mörg önnur sem greind voru og staðfest á þessu árabili sem um ræðir.