Veiting ríkisborgararéttar
Föstudaginn 08. desember 1989


     Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Herra forseti. Við meðferð þessa frv. í hv. Nd. var bætt inn nokkrum nýjum einstaklingum. Það var gert í samráði við allshn. Ed. og hafði hún þegar fjallað um sumar þessara umsókna. Umsóknir þeirra eru í samræmi við þær reglur sem miðað er við og mælir allshn. Ed. með því að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem á því voru gerðar í Nd.