Tekjuskattur og eignarskattur
Föstudaginn 08. desember 1989


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti vill greina frá því að ætlunin er að fresta þessari umræðu um kl. 7 og slíta þá fundi. Síðan verður boðað til nýs fundar kl. 8.30 í kvöld samkvæmt dagskrá sem þá mun liggja fyrir og þá verður m.a. leitað afbrigða vegna tveggja stjórnarfrumvarpa sem forseti hyggst koma til Ed. Umræðu um tekjuskatt og eignarskatt verður þá haldið áfram.