Stjórnarráð Íslands
Mánudaginn 11. desember 1989


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Hér var í miðri ræðu hv. 3. þm. Reykv. sem hafði óskað eftir því að viðstaddur umræðuna yrði hæstv. heilbr.- og trmrh. og vildi láta fresta umræðunni væri ekki unnt að ná í hann. Forseti getur með engu móti fallist á að umræðunni verði frestað vegna fjarvistar hæstv. heilbr.- og trmrh. sem á enga beina aðild að þessu máli. En hv. 3. þm. Reykv. getur haldið áfram ræðu sinni.