Fjárlög 1990
Þriðjudaginn 12. desember 1989


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Það var boðað hér að fundi yrði frestað kl. 7 og hæfist aftur kl. 9 og þingmenn gera að sjálfsögðu ráð fyrir því þannig að það er óhjákvæmilegt að þingmönnum gefist kostur á því að hlusta á lokaræðu hæstv. fjmrh. Ég held að það gangi ekki að breyta þeirri fundaráætlun sem hefur verið tilkynnt úr forsetastóli.