Fjárlög 1990
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Þórhildur Þorleifsdóttir:
    Hæstv. forseti. Jafnframt því sem Kvennalistinn vill lýsa því yfir að hann er samþykkur stofnun umhverfisráðuneytis og hefur reyndar talið það löngu tímabært vil ég taka fram að þær forsendur sem þarna eru gefnar eru okkur að miklu leyti ókunnar og í samræmi við aðra afstöðu okkar til fjárlagafrv. greiðum við ekki atkvæði.