Fjárlög 1990
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Sighvatur Björgvinsson (um atkvæðagreiðslu):
    Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins taka það fram að fjvn. hefur enn ekki fjallað um 6. gr. Hún mun gera það á milli 2. og 3. umr. og ég mundi eindregið vilja beina þeim tilmælum til manna að leggja ekki í þær atkvæðagreiðslur sem hér hefur verið gerð tillaga um heldur fallast á að fresta sínum beiðnum þannig að fjvn. geti skoðað 6. gr. fjárlagafrv. en það hefur hún ekki gert.