Nefndastörf
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Forseti (Jón Helgason):
    Ég óska eftir því að fulltrúar flokkanna hitti mig hér að máli þegar fundum er lokið í Ed. svo að við getum rætt þetta sem ég held að sé heppilegra að ræða á þann hátt. En vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e. að ekki hafi verið staðið við ákvörðun um fund í sjútvn. í dag, þá lagði ég til að fundur yrði boðaður þegar fundi hefði verið frestað í Ed. í dag. Veit ég ekki annað en þannig hafi verið boðað.