Skuldbreytingar vegna loðdýraræktar
Miðvikudaginn 13. desember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Það má svo sem vel vera að flm. hafi misskilið þetta en þó kemur það nú skýrt fram að hér sé verið að veita lán með ákveðnum skilyrðum. Ef það er rétt sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að hér sé um bankalán að ræða, sýnist mér nú að Alþingi sé komið út á ansi hálan ís að ætla að fara að ákvarða vaxtaprósentuna fyrir bankana í landinu. Ég tel að það sé þá eitt og sér íhugunarefni.