Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa vegna orða hæstv. ráðherra að það varð ekki ljóst fyrr en eftir að dagskrá hafði verið prentuð að hann ætti í erfiðleikum með að vera hér á þessum tíma. En til þess að enda þessa þingskapaumræðu, þá skal forseti upplýsa að það verður reynt að sjá til þess að þessari fsp. verði svarað.