Lánsfjárlög 1989
Föstudaginn 15. desember 1989


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Hér fer nú fram sjöunda umræða um þetta frv. en þessi hv. deild afgreiddi þetta mál fyrir nokkru síðan. Síðan gerði Nd. brtt. við frv. og bætti inn í það einum lið er varðar Lánasjóð ísl. námsmanna. Mál þetta var tekið fyrir í fjh.- og viðskn. nú í morgun. Voru menn sammála um afgreiðslu frv. og leggja til að þessi breyting verði samþykkt og málið afgreitt.