Kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Föstudaginn 15. desember 1989


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga á þskj. 179 um breytingu á lögum nr. 80 frá 15. ágúst 1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn. Þetta frv. er komið frá hv. Ed.
    Í þessu frv. er lagt til að hlutafélaginu verði heimilt að taka þátt í öðrum félögum og öðrum greinum atvinnurekstrar en vera ekki eingöngu bundið við vinnslu kísilgúrs úr botni Mývatns. Skv. núgildandi aðalsamningi milli ríkisstjórnarinnar og Manville Corporation takmarkast starfsemi Kísiliðjunnar við nám og vinnslu kísilgúrs. Afkoma Kísiliðjunnar hefur verið góð á undanförnum árum og hefur félaginu tekist að greiða niður allar langtíma skuldir sínar og er eiginfjárhlutfall fyrirtækisins orðið yfir 90%. Með tilliti til þessarar sterku efnahagsstöðu félagsins virðist mér eðlilegt að rýmka nú verksvið Kísiliðjunnar á þann hátt sem lagt er til með þessu frv. Mér finnst skynsamlegt að nýta þann styrk sem samstarfið við Manville-félagið hefur gefið Kísiliðjunni og þá miklu tækni, markaðs- og stjórnunarþekkingu, sem þar er að finna, á þennan hátt. Með því að rýmka verksviðið gæti Kísiliðjan hf. orðið virkari þátttakandi í atvinnurekstri í landinu og reyndar styrkt stoðir atvinnulífsins, ekki síst í sínu heimahéraði og reyndar víðar á Norðausturlandi.
    Með samningi sem var undirritaður föstudaginn 23. júní á þessu ári var ákvæði aðalsamnings milli Manville og íslensku ríkisstjórnarinnar breytt með viðauka við samninginn á þann hátt að félaginu var veitt heimild til að fjárfesta í atvinnurekstri hér á landi. Viðaukinn var undirritaður samhliða
því að Manville Corporation jók eignarhlut sinn í félaginu úr 39,8% í 48,7% með kaupum á 8,9% hlutafjár í félaginu. Þessi breyting á hlutafjárskiptingunni felur reyndar í sér að aftur er horfið að upphaflegri skiptingu hlutafjárins eins og hún var við stofnun félagsins. En um sinn eftir þau vandræði sem hlutust af Kröflueldum varð ríkið að auka nokkuð framlag sitt til þessa félags og þar með hlut sinn í heildarhlutafé. Ákvæðin um breytt hlutverk Kísiliðjunnar voru undirrituð með fyrirvara um samþykkt Alþingis á þann hátt sem hér er nú gerð tillaga um. Ákvæðin um sölu hlutabréfanna tóku hins vegar gildi þegar við undirritun skv. ákvæðum laganna um Kísiliðjuna.
    Á liðnum árum hefur Manville-félagið athugað nokkra kosti hér á landi, m.a. nám og vinnslu perlusteins, kaup á steinull til frekari úrvinnslu í Bretlandi og frekari úrvinnslu kísilgúrs hér á landi. Kísiliðjan hf. hefur gert samstarfssamning við Iðntæknistofnun Íslands um könnun á nokkrum kostum til aukins iðnrekstrar hér á landi og hefur sú könnun einkum beinst að því hvort vinna megi svokallaða zeólíta úr kísilgúr. Markaður fyrir þessa afurð, zeólítana, fer nú mjög vaxandi en þetta efni er m.a. notað sem íblöndunarefni í þvottaefni og ýmis hreinsiefni. Þess skal getið að sérfræðingar frá Manville-félaginu hafa unnið með sérfræðingum

Iðntæknistofnunar að sýnatöku úr perlusteini úr Prestahnjúki. Reyndar eru frumniðurstöður þeirrar könnunar þær að perlusteinninn henti ekki sérlega vel til þeirrar framleiðslu, þenslu, sem Manville-félagið hafði í huga.
    Samstarfið við Iðntæknistofnun um zeólítaverkefnið lofar hins vegar góðu. Það er til marks um það hversu vel þetta samstarf hefur tekist að Manville-félagið hefur hug á því að fá Iðntæknistofnun Íslands til þess að vinna verkefnið fyrir sig vegna annarrar framleiðslu þeirra, þ.e. í öðrum löndum. En m.a. vegna þessara vænlegu kosta sem Kísiliðjan lætur nú kanna í samstarfi við Manville-félagið er æskilegt og reyndar nauðsynlegt að Kísiliðjan fái heimild til þess að taka þátt í annarri atvinnustarfsemi en þeirri sem hún er bundin við skv. lögunum.
    Virðulegi forseti. Ég tel ekki þörf á að gera frekari grein fyrir þessu frv. en það er sama eðlis og frv. til laga um breytingu á lögum um Járnblendifélagið á Grundartanga sem fram var lagt og samþykkt á sl. vori. Ég legg til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn. þessarar deildar að lokinni þessari umræðu.