Almannatryggingar
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. 2. minni hl. heilbr.- og trn. (Anna Ólafsdóttir Björnsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 441 frá 2. minni hl. heilbr.- og trn. Frv. það sem hér er til afgreiðslu var upphaflega lagt fram með það að meginmarkmiði að ná fram sparnaði í útgjöldum ríkisins vegna tannlæknakostnaðar eins og fram kemur í athugasemdum við frv. Á fund nefndarinnar komu fulltrúar frá Tannlæknafélagi Íslands, Tannréttingafélagi Íslands og heilbr.- og trmrn. Að fengnum ábendingum frá þeim telur 2. minni hl. að ná megi markmiðum frv. betur á annan hátt en lagður er til þar. Nefndin hefði þurft að fá tækifæri til að taka afstöðu til þessara hugmynda en til þess gafst ekki tími. Jafnframt komu fram efasemdir fulltrúa Tannlæknafélags Íslands og Tannréttingafélags Íslands um að frv. mundi leiða til sparnaðar. Tölur þær, sem lagðar eru til grundvallar í áætlun um sparnað samkvæmt frv., hafa og verið dregnar í efa í umræðum innan nefndarinnar. Annar minni hl. telur að margt hefði mátt færa til betri vegar með nánari umfjöllun innan nefndarinnar.
    Annar minni hl. telur þá flokkun tannréttinga sem lögð er til í frv. hins vegar mjög til bóta.
    Brtt. þær, sem fram komu í lok nefndarstarfa, eru að mörgu leyti óviðkomandi efni upphaflega frv. Þær eru byggðar á samkomulagi þeirra aðila sem málið varðar. Því mun 2. minni hl. styðja þær en að öðru leyti sitja hjá við afgreiðslu málsins vegna þeirra hnökra sem orðið hafa og þess flýtis sem lýst er. Og undir þetta ritar Anna Ólafsdóttir Björnsson.