Jólakveðjur
Föstudaginn 22. desember 1989


     Forseti (Jón Helgason):
    Þá er komið að lokum þessa fundar sem er síðasti fundur deildarinnar nú fyrir jól. Ég vil þakka hv. deildarmönnum kærlega fyrir mjög gott samstarf við afgreiðslu mála hér í deildinni það sem af er þessu þingi og vænti þess að það megi haldast áfram á nýju ári. Ég vil færa öllum hv. deildarmönnum bestu jóla- og nýársóskir og jafnframt vil ég flytja skrifstofustjóra Alþingis og öðru starfsliði bestu jóla- og nýársóskir og þakka öllum fyrir ágætt starf og samstarf á liðnu ári.
    Þeim þingdeildarmönnum sem eiga langan veg heim að fara óska ég góðrar heimfarar og heimkomu og vonast til þess að við megum öll hittast hér heil að loknu jólahléi á nýju ári.