Jólakveðjur
Föstudaginn 22. desember 1989


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Ég þakka góðar óskir hv. 11. þm. Reykn. og deildarinnar allrar sem mér og minni fjölskyldu hafa verið fluttar hér og nú. Ég endurtek einnig góðar óskir mínar til hv. þm. og starfsfólks Alþingis og lýsi þeirri ósk minni að þeir muni eiga friðsæl og gleðileg jól.