Uppgjör
Föstudaginn 22. desember 1989


     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti.

Ég hef varið Steingríms stjórn,
stolt hans virðist ekki mikið.
Að halda orð, það finnst þeim fórn,
fátt var efnt en meira svikið.

Loforð reynast létt á vikt,
lengst af hægt að treysta orðum.
Ekkert virðist orðið tryggt,
ómerkingar taldir forðum.