Uppgjör
Föstudaginn 22. desember 1989


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Mér sýndist nú þetta ljóð löngu ort, enda veit hv. þm. það að það samkomulag sem við gerðum 28. sept. þegar sú ríkisstjórn var mynduð, í fyrra, gilti alls ekki þegar ný ríkisstjórn var mynduð og var ekkert um það talað og ekki einu sinni farið fram á það af hv. þm.