Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Þessi grein er afleiðing af ákvörðunum sem Alþingi hefur tekið. Þetta eru útreikningar á því hver verði sennilegasta niðurstaðan á þeirri innheimtu sem gert er ráð fyrir á næsta ári á sköttum ríkisins. Mér er ekki ljóst hvernig það getur gengið upp að leggja skattana á en gera ekki ráð fyrir því að þeir séu innheimtir. Ég veit ekki aðra áætlun réttari en þá sem hér liggur fyrir og segi því já.