Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Ég fæ ekki betur séð, ef litið er á liði í næstu brtt. frá meiri hl. fjvn. þar sem eru framlög til Háskólans á Akureyri, Tæki, búnaður og Almennur rekstur, en að ef þessi tillaga sem hér er nú til umræðu væri samþykkt, sé um lægri upphæð að ræða en meiri hl. fjvn. leggur til að renni til Háskólans á Akureyri. Hér er því í rauninni um lækkunartillögu að ræða. Ég fylgi þeim tillögum sem meiri hl. fjvn. hefur gert tillögu um og segi nei.