Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Árni Gunnarsson:
    Virðulegi forseti. Hér eru á ferðinni rannsóknir sem þarf að vinna að og eru hinar merkustu í alla staði. Hins vegar hef ég þá vitneskju að undirbúningur þessara rannsókna sé of skammt á veg kominn og að framlög af þessu tagi, til sjálfra rannsóknanna, þjóni því ekki verulegum tilgangi á þessari stundu. Ég segi því nei.