Framhaldsfundir Alþingis
Mánudaginn 22. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar þingmanna. Jafnframt vil ég óska hæstv. forsrh., alþingismönnum öllum, svo og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og flyt þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári.
    Ég býð alla þingmenn velkomna til starfa á nýju ári.
    Samkvæmt forsetabréfi sem forsrh. hefur lesið hefjast nú fundastörf í sameinuðu þingi.