Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hafa tvö eftirfarandi bréf:

    ,,Guðmundur G. Þórarinsson, 10. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum utan í opinberum erindagerðum og get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Finnur Ingólfsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.

Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Finnur Ingólfsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.
    Þá hefur borist annað bréf, svohljóðandi:
    ,,Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsfl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Stefán Guðmundsson, 3. þm. Norðurl. v., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Elín Líndal hreppstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.

Jón Helgason,

forseti Ed.``


    Elín Líndal hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hana velkomna til starfa.