Flugmálaáætlun 1990--1993
Mánudaginn 22. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e. vil ég taka fram að ég hef ekki hafnað neinni beiðni um frestun. Ég hef farið að beiðni hv. þm. og hingað eru á leiðinni hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. Merkið sem ég var að gefa hv. þm. var að hann hafði einfaldlega, eins og aðrir þm. stundum, lokið ræðutíma sínum.