Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að bæta miklu við þau svör sem hæstv. forsrh. hefur þegar gefið við fyrirspurnum hv. 1. þm. Reykv. Þó vil ég sérstaklega víkja að tveimur seinustu spurningunum og þá fyrst: Hvers vegna vill ríkisstjórnin kaupa meiri hluta í Íslenskum aðalverktökum?
Ég vil rifja upp að það var ekki liðinn langur tími frá því að sá sem hér stendur tók við embætti utanrrh. þegar ég lýsti þeirri skoðun minni að núv. fyrirkomulag verktöku þyrfti að taka til endurskoðunar og jafnframt þeirri stefnu minni að eðlilegt væri að ríkisstjórnin, ríkisvaldið, tryggði sér meiri hluta í þessu verktakafyrirtæki. Hvers vegna? Jú, það er vegna þess að hér er um að ræða ríkisverndaða einokun. Arðurinn af þeirri starfsemi ætti þess vegna að renna til samfélagsins í heild en ekki til einstaklinga sem úthlutað hefur verið þessu forréttindavaldi af ríkisvaldinu. Það er þess vegna meginskýringin á því. Ég tek það að vísu skýrt fram að það þarf ekki endilega að þýða ríkisrekstur til frambúðar í þessu tilviki. Þar getur komið til álita að þreifa fyrir sér um víðtæka almenningseign í formi almenningshlutafélags en þá verður líka að vera tryggt að sú eign sé mjög almenn.
Verður frv. lagt fyrir Alþingi? Hingað til hef ég ekki gert ráð fyrir því. Því er hins vegar kannski ekki hægt að svara endanlega á þessari stundu vegna þess að það ræðst náttúrlega af því hvernig samningar takast milli aðila. Ég er hins vegar ráðinn í því að reyna að hafa sem nánast samráð um þetta mál við hv. fjvn. og að sjálfsögðu er það svo að ef leitað verður heimildar Alþingis til fjárráðstöfunar í þessu efni, ef það verður niðurstaða samninganna, sem ég kannski tel ekki mjög líklegt, verður að sjálfsögðu að leita til Alþingis um það mál.
Forsrh. hefur þegar svarað því hvaða ráðuneyti fer með og mun fara með hlut ríkisins í stjórn Aðalverktaka ef af samningi verður, enda byggist það á bæði
samningi félagsins sjálfs og einnig lögum um yfirstjórn mála á varnarsvæðum frá árinu 1954.
Sama er að segja að því er varðar mat á eignum Aðalverktaka. Sú tala liggur ekki fyrir. Um hana er verið að ræða og verða skipaðir sérstakir matsmenn til þess en ég tek undir það sem ég skildi svo vera og kom fram í máli ræðumanns að þar ber ekki að meta viðskiptavild með venjulegum hætti af þeirri ástæðu að hún er raunverulega sköpuð af ríkisvaldinu sjálfu.
Virðulegi forseti. Ég mun þá ekki hafa mál mitt lengra þótt ýmsu öðru mætti við bæta en til þess gefst ekki tími.