Evrópusamningur um varnir gegn pyndingum
Miðvikudaginn 24. janúar 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Herra forseti. Ég vil þakka hv. 4. þm. Vesturl. fyrir undirtektir hans við þetta mál. Varðandi spurningu hans verð ég að svara því að mér er ókunnugt um hvernig á því stendur. Fljótlega eftir að ég kom í dóms- og kirkjumálaráðuneytið varð mér ljóst að þetta mál var þar á borðum og hef síðan reynt að fylgja því eftir. Að öðru leyti veit ég ekki hvernig á þessum tímamismun stendur.