Úrskurðir Jafnréttisráðs
Fimmtudaginn 25. janúar 1990


     Anna Ólafsdóttir Björnsson:
    Virðulegi forseti. Einungis vegna þess að máli var beint til mín vildi ég mjög gjarnan ræða það sem vel hefði verið gert. Komi fram mál þar sem tilefni er til þess og spurt sérstaklega um jákvæða þætti þá skal ég með ánægju rekja góð dæmi í rétta átt í jafnréttismálum, einkum það sem hæstv. menntmrh. vísað til hér áðan.