Útgerð Andra BA
Fimmtudaginn 25. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Eins og áður hafði komið fram hefst nú umræða utan dagskrár. Það er hv. 4. þm. Vesturl. sem hefur farið fram á að eiga orðastað við hæstv. sjútvrh., utanrrh. og hæstv. samgrh. um útgerð Andra BA og þau vandamál sem skapast hafa af veru skipsins Andra við strendur Bandaríkjanna.
    Nú er það svo að hæstv. sjútvrh. getur ekki verið hér en hæstv. samgrh. og hæstv. utanrrh. eru hér til svara. Umræðan fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapa og má því eigi standa lengur en í hálftíma.