Lágmarksframfærslukostnaður í landinu
Fimmtudaginn 25. janúar 1990


     Flm. (Stefán Valgeirsson):
    Virðulegi forseti. Á þskj. 101 hef ég leyft mér að flytja till. um að athuga lágmarksframfærslukostnað í landinu. Tillgr. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela Hagstofu Íslands að kanna, meta og gera sundurliðaða greinargerð um lágmarksframfærslukostnað í landinu. Greinargerðin sýni lágmarksframfærslukostnað manns sem ekki á aðrar eignir sem tengjast framfærslu en föt og venjulegt innbú. Skal greinargerðin miðast við framfærslu í eitt ár á verðlagi í desember 1989. Skal miðað við að maðurinn geti veitt sér hollt og næringarríkt fæði og búi í húsnæði sem ekki spillir heilsu hans og hann þarf ekki að deila með öðrum, einnig að hann geti unnið öll heimilisstörf sjálfur. Meta skal fæðis- og húsnæðiskostnað og hitunar- og rafmagnskostnað sérstaklega. Einnig skal meta aðra kostnaðarliði sérstaklega eftir því sem henta þykir, en við mat á kostnaði við föt, bækur, skemmtanir og annað en brýnustu lífsnauðsynjar skal miða við kostnað sem láglaunafólk hefur haft af þessu í framfærsluvísitölugrundvelli Hagstofunnar.
    Þá er Hagstofunni einnig falið að kanna og taka saman greinargerð um lágmarksframfærslukostnað barns sem sýni sundurliðaðan framfærslukostnað fyrir hvert ár frá fæðingu til fullnaðs átján ára aldurs þess. Skal miðað við sömu forsendur og fyrir fullorðinn einstakling með þeirri athugasemd að barnið sé barn einstæðs foreldris sem eins er ástatt um og greinir í fyrri hluta áætlunarinnar.
    Sé umtalsverður, meira en 5%, munur á kostnaði við lágmarksframfærslu eftir kyni mannsins eða barnsins skal greina sérstaklega frá því. Einnig skal greina
sérstaklega frá mismun sem kann að vera á hitunar- og rafmagnskostnaði eftir búsetu, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar þar sem hann er hvað hæstur í strjálbýli. Hagstofan skal leita sérfræðiaðstoðar utan stofnunarinnar eftir því sem hún telur þörf á.
    Leitast skal við að ljúka könnuninni sem fyrst og eigi síðar en 1. júní 1990.``
    Tillaga sama efnis um lágmarksframfærslukostnað var flutt á síðasta þingi, en fékkst ekki afgreidd. Mikilvægi málsins leyfir ekki slíka niðurstöðu.
    Í samfélagi, sem hefur jöfnuð og velferð að meginmarkmiði, hlýtur lágmarksframfærslukostnaður fólks að vera grundvallarstærð sem önnur mörk og viðmiðanir í hagkerfinu verða að miðast við. Er þar átt við lágmarkslaun, elli- og örorkulaun, barnabætur og aðrar greiðslur til framfærslu barna, einnig gengisákvarðanir, vexti, skatta á laun og óbeina skatta og gjöld á lífsnauðsynjar og fleira.
    Það er því mjög brýnt fyrir þá sem vinna að samfélagsmálum og þá sem láta sig slík mál varða að hafa upplýsingar um lágmarksframfærslukostnað í landinu. Á þetta hefur skort. Framfærsluvísitala Hagstofunnar byggist á meðaltali framfærslukostnaðar

og ekki hefur verið gerð hér á landi alvarleg tilraun til að komast að því hver lágmarksframfærslukostnaður einhleypings er. Hér eru að sjálfsögðu mörg álitamál, t.d. hvort telja eigi með kostnað við tóbaksnotkun, bifreið og fleira. Flutningsmaður tekur ekki afstöðu til þess, en gerir sér vonir um að sundurliðun í greinargerðinni upplýsi um þessa kostnaðarliði sérstaklega, og löggjafarvaldið eða önnur stjórnvöld, sem áhuga hafa á þessum málum, setji með tímanum ákveðnari viðmiðanir sem síðari kannanir á lágmarksframfærslukostnaði skuli miðast við. Sama á við um stærð og búnað húsnæðis og endurgjald fyrir það. Auðvitað er eðlilegt í framtíðinni að miða við ákveðnar grunnþarfir og einhverja nærtækustu lausnina við að uppfylla þær. Þessi og önnur atriði af sama toga skýrast betur við vinnu að verkinu og er við því að búast að Hagstofan, framkvæmdaraðilinn, greini frá matsvandamálum og öðrum atriðum sem ástæða þykir til í forsendum greinargerðarinnar.
    Það er eiginlega furðulegt að í okkar þjóðfélagi sé það þannig að lágmarkslaun skuli ekki vera miðuð við frumþarfir. En hér á hinu háa Alþingi og úti í þjóðfélaginu skuli vera tekist á um það að fjármagnið hafi alltaf sitt og það skuli vera reynt með öllum mögulegum hætti og ómögulegum að villa um fyrir almenningi í landinu hvernig raunverulega staða allra þessara mála er.
    Ég vona að Alþingi verði við því að afgreiða þessa þáltill. á þessu þingi og mælist til þess við hæstv. forseta að hún geri það sem í hennar valdi stendur til þess að það megi verða. Ég hygg að eðlilegt sé að þetta fari til félmn. og óska eftir að þessu verði vísað til síðari umr. og félmn.