Orkuskattur og kjarasamningar
Þriðjudaginn 30. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):
    Forseti hefur þegar gert orð til ráðherra um ósk þingmanna að þeir mæti hér á fund og það stendur ekki í valdi forseta að gera meira en að koma þessum orðum áleiðis. Það eru engin ráð í þingsköpum til að særa menn á þennan fund, hvorki ráðherra né þingmenn ef þeir ekki kjósa eða geta mætt.