Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins vekja athygli manna á þeirri áráttu sem kemur fram hjá hv. 1. þm. Suðurl., ég vil segja þráhyggju, að reyna með öllum tiltækum ráðum og tilbúnum og ónýtum rökum að níða niður æruna af arftaka sínum, núv. hæstv. forsrh. íslenska lýðveldisins. Þetta er næsta sérkennilegt og þegar það svo bætist við að hér er fyrrv. forsrh. okkar á ferðinni, þá verður það öllum mun óskemmtilegra fyrir vikið.