Skýrsla um kaup hlutabréfa í Samvinnubanka.
Fimmtudaginn 01. febrúar 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég get fullvissað hv. 1. þm. Suðurl. um að ekki hefur verið nein tregða að gefa upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna þeirrar skýrslu sem hann ásamt nokkrum öðrum þingmönnum bað um hér í þinginu rétt fyrir jólaleyfi þingsins. Það hefur tekið þennan tíma að afla gagna. Það hefur ekki verið neinn óeðlilegur dráttur á málinu. Ég mun leggja skýrsluna fyrir þingið jafnskjótt og hún er tilbúin. Ég á von á því að það verði í næstu viku.