Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti hefur verið að íhuga það hvort sú umræða sem hv. 1. þm. Reykv. hefur upp hafið falli undir þingsköp. Hann telur að hún geti flokkast undir þingsköp þar sem verið er að ræða málefnalega hvernig haldið skuli á máli sem nú er deilt um. Ég hygg því að þetta geti flokkast undir það að vera þingskapaumræða.