Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Fyrir stundu var haldinn fundur með forsetum þingsins og þingflokksformönnum. Þar náðist eftirfarandi samkomulag um fundahald hér í dag:
Þessum fundi verður nú frestað og þegar í stað settur fundur í Nd. þar sem tekið verður til að nýju við það mál sem á dagskrá var þegar þeim fundi var frestað í dag. Náist að ljúka því máli fyrir kvöldverðarhlé má gera ráð fyrir að kvöldfundur verði nema menn treysti sér til að þessari umræðu ljúki í síðasta lagi fyrir kl. 8. --- [Fundarhlé.]